FRÍ fær viðbótarstyrk frá ÍSÍ

Á myndinni má sjá þau Guðlaugu Baldvinsdóttur, gjaldkera FRÍ, Frey …
Á myndinni má sjá þau Guðlaugu Baldvinsdóttur, gjaldkera FRÍ, Frey Ólafsson, formann FRÍ, Lilju Sigurðardóttur, formann Afrekssjóðs ÍSÍ og Lárus L. Blöndal, forseta ÍSÍ við undirritun samnings um viðbótarstyrkinn. Ljósmynd/ÍSÍ

Frjálsíþróttasamband Íslands, FRÍ, hefur hlotið viðbótarstyrkveitingu úr Afrekssjóði ÍSÍ vegna landsliðsverkefna ársins 2017. Um er að ræða styrk að upphæð 11 milljónum króna sem bætist við fyrri úthlutun til sambandsins, en sambandið hlaut styrk að upphæð 12 milljónum króna í fyrri úthlutun ársins úr Afrekssjóði ÍSÍ.

Í tilkynningu á heimasíðu ÍSÍ segir að þessi viðbótarstyrkur til FRÍ skiptir mjög miklu máli fyrir afreksstarf sambandsins, en umfang þess hefur aukist mikið á árinu og heyra 11 verkefni á erlendri grundu undir skilgreint afreksstarf sambandsins.

Allt starf FRÍ miðar að því að bæta umhverfi afreksíþróttamanna sambandsins og öðlast svigrúm til að mæta þörfum íþróttamanna með skilvirkum hætti þegar mest á reynir í undirbúningi fyrir stórmótaverkefni og til að geta sem best mætt þeirri áskorun sem felst í markmiði FRÍ og ÍSÍ á afrekssviði - þ.e. að eiga afreksfólk sem skipar sér á bekk með þeim bestu í heiminum á hverjum tíma og að getustig íslensks frjálsíþróttafólks hækki stöðugt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert