Blaksamband Íslands hlýtur styrk

Við undirritun samningsins.
Við undirritun samningsins. Ljósmynd/Bli.is

Blaksamband Íslands (BLÍ) hefur hlotið viðbótarstyrkveitingu úr Afrekssjóði ÍSÍ vegna landsliðsverkefna ársins 2017. Um er að ræða styrk að upphæð 4 milljónir króna sem bætist við fyrri úthlutun til sambandsins, en sambandið hlaut styrk að upphæð 4,4 milljónir króna í fyrri úthlutun ársins úr Afrekssjóði ÍSÍ.

Landsliðs- og afreksstarf Blaksambands Íslands hefur aldrei verið meira en undanfarna 12 mánuði. Á árinu voru send 12 landslið til keppni í 20 mótum og mikil vinna hefur verið á bakvið starfið sem eðlilega hefur vaxið mikið við fjölgun landsliðanna.

A landslið karla og kvenna tóku þátt í annarri umferð í undankeppni HM, en aldrei áður hafa liðin náð eins langt. Liðin áttu góða leiki gegn stóru þjóðunum þrátt fyrir tap í öllum leikjum og varð til mikilvæg reynsla sem mun nýtast í næstu áskorunum. Sambandið hefur vaxið gríðarlega undanfarin ár og tekið næsta skref í þróun sambandsins og afreksstarfi þess. Viðbótarstyrkveiting Afrekssjóðs ÍSÍ kemur sér sérstaklega vel gagnvart þeim vexti og mun hjálpa til við að efla starfið enn frekar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert