Halldór Logi og Inga Birna sigurvegarar

Sigurvegarar í opnum flokki karla og kvenna, Halldór Logi Valsson …
Sigurvegarar í opnum flokki karla og kvenna, Halldór Logi Valsson og Inga Birna Ársælsdóttir. Ljósmynd/Mjölnir

Grettismót Mjölnis fór fram um síðustu helgi en þetta er fimmta árið í röð sem mótið er haldið. Á mótinu er keppt í brasilísku jiu-jitsu (BJJ) og keppt er í galla (gi).

Um fjörutíu keppendur frá félögum víðs vegar um landið tóku þátt en keppt var í nokkrum þyngdarflokkum auk opinna flokka karla og kvenna. Þau Halldór Logi Valsson og Inga Birna Ársælsdóttir úr Mjölni voru sigurvegarar dagsins en þau unnu opnu flokkana eftir glæsilegar glímur sem báðar enduðu með uppgjafartaki. Auk þessa var uppgjafartak Halldórs Loga í úrslitaglímu opna flokksins valið besta uppgjafartak keppninnar. 

Verðlaunahafar voru:

-68 kg flokkur karla:

    1. sæti: Pétur Óskar Þorkelsson (Mjölnir)
    2. sæti: Philippe Bauzon (Kore BJJ)
    3. sæti: Gunnar Sigurðsson (VBC)

-79 kg flokkur karla:

    1. sæti: Vilhjálmur Arnarsson (Fenrir)
    2. sæti: Kristján Einarsson (Mjölnir)
    3. sæti: Valdimar Torfason (Mjölnir)

-90 kg flokkur karla:

    1. sæti: Eiður Sigurðsson (VBC)
    2. sæti: Kristján Helgi Hafliðason (Mjölnir)
    3. sæti: Þórhallur Ragnarsson (Mjölnir)

-101 kg flokkur karla:

    1. sæti: Halldór Logi Valsson (Mjölnir)
    2. sæti: Pétur Marinó Jónsson (Mjölnir)
    3. sæti: Máximos Aljayuosi (Mjölnir)

+101 kg flokkur karla:

    1. sæti: Brynjar Örn Ellertsson (Mjölnir)
    2. sæti: Pétur Jóhannes Óskarsson (Mjölnir)
    3. sæti: Kjartan Vífill Ívarsson (Kore BJJ)

Opinn flokkur kvenna:

    1. sæti: Inga Birna Ársælsdóttir (Mjölnir)
    2. sæti: Karlotta Brynja Baldvinsdóttir (VBC)
    3. sæti: Dóra Haraldsdóttir (Mjölnir)

Opinn flokkur karla:

    1. sæti: Halldór Logi Valsson (Mjölnir)
    2. sæti: Eiður Sigurðsson (VBC)
    3. sæti: Brynjar Örn Ellertsson (Mjölnir)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert