Landsliðshópar í badminton valdir

Kristófer Darri Finnsson og Margrét Jóhannsdóttir eru bæði í landsliðshóp.
Kristófer Darri Finnsson og Margrét Jóhannsdóttir eru bæði í landsliðshóp. Ljósmynd/Badmintonsamband Íslands

Evrópukeppni karla- og kvennalandsliða í badminton fer fram í Kazan í Rússlandi dagana 13.–18. febrúar 2018. Spilað er í riðlum og sigurvegarar riðlanna vinna sér inn þátttökurétt í heimsmeistarakeppni karla- og kvennalandsliða, sem fer fram í Bangkok í Taílandi 20.–27. maí 2018 en þar keppa sigurvegarar allra riðla í öllum heimsálfum. Karlakeppnin kallast Thomas Cup og kvennakeppnin Uber Cup.

Tinna Helgadóttir, landsliðsþjálfari og Atli Jóhannesson aðstoðarlandsliðsþjálfari hafa valið hópana sem taka þátt fyrir Íslands hönd. Karlalandsliðið skipa Daníel Jóhannesson TBR, Davíð Bjarni Björnsson TBR, Kári Gunnarsson TBR og Kristófer Darri Finnsson TBR. Kvennalandsliðið skipa Arna Karen Jóhannsdóttir TBR, Margrét Jóhannsdóttir TBR, Sigríður Árnadóttir TBR og Þórunn Eylands TBR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert