Arnar upp í 7. sæti í Noregi

Arnar Davíð Jónsson
Arnar Davíð Jónsson Ljósmynd/KLÍ

Annar dagur Opna norska meistaramótsins í keilu fór fram í gær. Allir íslensku leikmennirnir léku þá. Það var Arnar Davíð Jónsson sem spilaði best í dag, 1376 sem gerir 229,33 í meðaltal. Þegar einn dagur er eftir af forkeppninni situr Arnar Davíð í 7. sæti.

Það var svo Einar Már Björnsson sem spilaði næst best okkar manna eða 1314 og Gústaf Smári Björnsson 1273. Einar situr sem stendur í 30. sæti og Gústaf Smári í 37. sæti. Alls eru um 200 keppendur í mótinu sem er hluti af Evrópsku mótaröðinni í keilu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert