Fanney varði Evrópumeistaratitilinn

Fanney Hauksdóttir.
Fanney Hauksdóttir. mbl.is/Styrmir Kári

Fanney Hauksdóttir varði Evrópumeistaratitil sinn í bekkpressu kvenna á La Manga á Spáni í dag er hún bar sigur úr býtum í -63 kg. flokki.

Fanney tryggði titilinn í fyrstu lyftu er hún lyfti 155 kílóum með búnaði. Hún reyndi við 160 kílóin í næstu tveimur lyftum en tókst ekki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert