Þórunn og Símon sigurvegarar

Keppt var í bandminton um helgina.
Keppt var í bandminton um helgina. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Vetrarmót TBR var haldið um helgina. Keppt var í öllum greinum í aldursflokkum U13 til U19. Mótið var hluti af unglingamótaröð Badmintonsambands Íslands og gaf stig á styrkleikalista. Að þessu sinni var keppt bæði í A- og B-flokki.

Í flokki U13 vann Steinar Petersen TBR en hann vann Eirík Tuma Briem TBR í úrslitum eftir oddalotu 16:21, 24:22 og 21:18. Ekki var keppt í einliða- og tvíliðaleik í flokki táta. Í tvíliðaleik hnokka unnu Einar Óli Guðbjörnsson og Jónas Orri Egilsson TBR en þeir lögðu Steinar Petersen og Eirík Tuma Briem TBR í úrslitum eftir oddalotu 12:21, 21:18, 21:17. Í tvenndarleik unnu Steinar Petersen og Sigurbjörg Árnadóttir TBR Arnar Svan Huldarsson og Höllu Stellu Sveinbjörnsdóttur BH í úrslitum 23:21, 21:9.

Í flokki U15 vann Gústav Nilsson TBR Steinþór Emil Svavarsson BH í úrslitum eftir oddalotu 18:21, 21:19, 21:13. Lilja Bu TBR vann í einliðaleik meyja en hún vann í úrslitum Sigurbjörgu Árnadóttur TBR 21:18, 21:9. Báðar voru þær að keppa upp fyrir sig. Í tvíliðaleik sveina unnu Gústav Nilsson og Stefán Árni Arnarsson TBR en þeir unnu í úrslitum Hákon Daða Gunnarsson og Steinþór Emil Svavarsson BH 21:12, 21:17. Í tvíliðaleik meyja unnu Lilja Bu og Sigurbjörg Árnadóttir TBR þær Lilju Berglindi Harðardóttur og Rakel Rut Kristjánsdóttur BH 21:15, 21:18. Í tvenndarleik unnu Gústav Nilsson og Júlíana Karitas Jóhannsdóttir TBR þau Steinþór Emil Svavarsson og Lilju Berglindi Harðardóttur BH 21:13, 21:17. Gústav vann því þrefalt á mótinu.

Í flokki U17/U19 vann Símon Orri Jóhannsson TBR en hann vann í úrslitum Andra Broddason TBR eftir oddalotu 16:21, 21:19, 21:19 í einliðaleik drengja. Þórunn Eylands TBR vann Katrínu Völu Einarsdóttur BH í úrslitum í einliðaleik telpna 21:11, 21:12. Í tvíliðaleik drengja unnu Andri Broddason og Elís Þór Dansson TBR Símon Orra Jóhannsson TBR og Þórð Skúlason BH eftir oddalotu 17:21, 26:24, 21:14. Í tvíliðaleik telpna unnu Halla María Gústafsdóttir og Una Hrund Örvar BH þær Önnu Alexöndru Petersen og Þórunni Eylands TBR eftir oddalotu 10:21, 21:19, 21:10. Í tvenndarleik unnu Elís Þór Dansson og Þórunn Eylands TBR en þau unnu í úrslitum Þórð Skúlason og Höllu Maríu Gústafsdóttur BH 21:7, 21:16.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert