Keilulandsliðin fara á HM í Las Vegas

Dagný Edda Þórisdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í keilu.
Dagný Edda Þórisdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í keilu. Ljósmynd/Jóhann Ágúst Jóhannsson

Heimsmeistaramótið í keilu verður haldið í Las Vegas dagana 24. nóvember - 4. desember. Á mótinu er keppt bæði í kvenna- og karlaaflokki. Keppt er í einstaklingskeppni, tvímenning, þrímenning og fimm manna liðum á mótinu. Landsliðsþjálfarar kvenna- og karlaliðanna tilkynntu í dag hvaða leikmenn muni leika fyrir Íslands hönd í Las Vegas.

Kvennalið Íslands tryggði sér keppnisrétt á heimsmeistaramótinu með góðum árangri á Evrópumeistaramótinu í Vín síðasta sumar. Hafþór Harðarson, þjálfari kvennaliðsins valdi eftirtalda keiluspilara til þess að taka þátt á heimsmeistaramótinu. 

Dagný Edda Þórisdóttir, KFR
Bergþóra Rós Ólafsdóttir, ÍR
Guðný Gunnarsdóttir, ÍR
Hafdís Pála Jónasdóttir, KFR
Katrín Fjóla Bragadóttir, KFR
Linda Hrönn Magnúsdóttir, ÍR

Karlalið Íslands komst inn á heimsmeistaramótið eftir að tvö lið frá Evrópu hættu við þátttöku. Landsliðsþjálfarar karlaliðsins, Ásgrímur H. Einarsson og Guðjón Júlíusson hafa valið eftirtalda keiluspilara til þess að leika á heimsmeistaramótinu fyrir Íslands hönd.

Arnar Davíð Jónsson KFR, fyrirliði
Gunnar Þór Ásgeirsson, ÍR
Gústaf Smári Björnsson, KFR
Hafþór Harðarson, ÍR
Jón Ingi Ragnarsson, KFR
Skúli Freyr Sigurðsson, KFR 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert