Southampton fjarlægðist fallsvæðið

Sofiane Boufal skorar hér sigurmark Southampton gegn WBA í leik …
Sofiane Boufal skorar hér sigurmark Southampton gegn WBA í leik liðanna í dag. AFP

Sofiane Boufal var hetja Southampton þegar liðið bar sigurorð af WBA með einu marki gegn engu í níundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla á St. Mary's í dag.

Boufal skoraði fyrir Southampton undir lok leiksins, en marokkóski landsliðsmaðurinn var þá nýkominn inn á sem varamaður. Mark Boufal var einkar laglegt, en hann skoraði með hnitmiðuðu skoti eftir glæsilegan einleik frá eigin vallarhelmingi.

Southampton komst í seilingarfjarlægð frá fallsvæðinu með þessum sigri, en liðið situr í tíunda sæti deildarinnar með 12 stig. WBA hefur hins vegar tíu stig í 13. sæti deildarinnar.    

Southampton 1:0 WBA opna loka
90. mín. Charlie Austin (Southampton) á skot í stöng Charlie Austin sleppur í gegnum vörn WBA eftir góða stungusendingu frá Sofiane Boufal. Austin kemst framhjá Ben Foster og skýtur í stöngina í þröngu færi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert