Hlynur vann úrslitahlaupið

Hlynur Andrésson.
Hlynur Andrésson. Ljósmynd/Scott W. Grau

Hlynur Andrésson úr ÍR, sem keppir undir merkjum Eastern Michigan-háskólans í Bandaríkjunum, kom um helgina fyrstur í mark í úrslitahlaupi Mið-Ameríku-svæðismótsins sem haldið var í Miami í Ohio-ríki.

Tími Hlyns í þessu 8 km víðavangshlaupi var 24:30 mínútur sem er afar góður árangur en Hlynur er á sínu síðasta ári hjá Eastern Michigan og er á fljúgandi ferð ásamt liði sínu.

Lið Hlyns vann stigakeppnina með 24 stig og hlupu liðsmenn á 2:03,35 klst. samtals sem var um einni og hálfri mínútu hraðar en sveitin í öðru sæti, sem hlaut 54 stig (en 1 stig fæst fyrir 1. sætið og þannig koll af kolli). Níu skólar tóku þátt í keppninni og skiluðu 80 hlauparar sér í mark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert