Svekkjandi niðurstaða hjá Viktori á HM

Viktor Samúelsson, kraftlyftingamaður frá Akureyri.
Viktor Samúelsson, kraftlyftingamaður frá Akureyri. Ljósmynd/Facebooksíða Viktors Samúelssonar

Akureyringurinn Viktor Samúelsson var í dag í eldlínunni á heimsmeistaramótinu í kraftlyftingum sem fram fer í Pilsen í Tékklandi. Viktor keppti í -120 kg flokki en árangur hans var afar svekkjandi.

Keppnin byrjaði í hnébeygju. Viktor reyndi þrisvar við 375 kg en náði engri gildri lyftu og því var ljóst að hann myndi ekki vera í baráttunni í samanlögðum árangri. Hann hélt þó áfram keppni enda tvær greinar eftir.

Viktor lyfti 290 kg í fyrstu tilraun í bekkpressunni og reyndi tvisvar við 312,5 kg. Í seinni lyftunni var hann grátlega nálægt því að fá hana gilda sem hefði skilað honum bronsi í greininni, en 290 kg lyftan var engu að síður fjórði besti árangurinn í bekkpressunni.

Í réttstöðulyftu náði Viktor 305 kg upp í fyrstu tilraun. Hann reyndi næst við 315 kg sem var ógilt, en fékk lyftuna gilda í annarri tilraun og reyndist það 10. besti árangurinn í greininni.

Viktor lyfti því samtals 610 kg en fær samanlaga árangurinn ekki metinn þar sem hann náði ekki skráðum lyftum í öllum greinum. Besti árangur hans í samanlögðu er 1.000 kg og hefði hann höggvið nærri því með gildri lyftu í hnébeygju.

Júlían J.K. Jóhannsson keppir á morgun í +120 kg flokki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert