Frábær leikur hjá Lindu

Landsliðshópurinn í keilu sem keppir á HM í Las Vegas.
Landsliðshópurinn í keilu sem keppir á HM í Las Vegas. Ljósmynd/Keilusamband Íslands

Í gær hófst keppni í þrímenningi á heimsmeistaramótinu í keilu í Las Vegas og var leikið bæði í karla- og kvennaflokki. Leiknir voru þrír leikir og voru 56 þrímenningar í kvennaflokki og 69 í karlaflokki.

Í kvennaflokki léku saman:

Ísland  1
Katrín Fjóla Bragadóttir
Linda Hrönn Magnúsdóttir
Dagný Edda Þórisdóttir

Ísland 2
Guðný Gunnarsdóttir
Bergþóra Rós Ólafsdóttir
Hafdís Pála Jónasdóttir


Ísland 1 spilaði ágætlega og var skorið þeirra 1.628 sem gera 181 í meðaltal og eru þær í 40. sæti. Þær áttu frábæran þriðja leik en hann spiluðu þær 627 og það var Linda Hrönn sem fór fyrir liðinu í þeim leik með 243 stig. Frábær leikur hjá Lindu og hæsti leikur íslensku stelpnanna það sem af er móti. Ísland 2 spilaði 1.524 sem gera 169 í meðaltal og eru í 51. sæti.

Í karlaflokki léku saman:

Ísland 1
Jón Ingi Ragnarsson
Arnar Davíð Jónsson
Hafþór Harðarson

Ísland 2
Gunnar Þór Ásgeirsson
Gústaf Smári Björnsson
Skúli Freyr Sigurðsson

Ísland 1 hóf daginn. Þeir spiluðu 1.692 sem gera 188 í meðaltal. Jón Ingi spilaði vel, 646 sem gera 215 í meðaltal.  Þetta setur þá í 55. sæti eftir fyrri daginn. Ísland 2 fylgdi á eftir og ætluð sér ekki minna en Ísland 1. Þeir spiluðu mjög vel í gærkvöld, 17.99 sem gerir 200 í meðaltal. Þeir eru í 27. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert