Skrautlegt skorkort og Birgir er úr leik í Hollandi

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. Reuters

Birgir Leifur Hafþórsson er úr leik á KLM-meistaramótinu golfi á Evrópumótaröðinni í Hollandi en hann lék á 5 höggum yfir pari samtals á fyrstu tveimur keppnisdögunum. Í dag lék Birgir á 75 höggum en hann fékk fjóra fugla á fyrstu fimm holunum en á 6. 7. og 8. braut lék hann á 6 höggum yfir pari.

Birgir lék á 72 höggum í gær eða tveimur höggum yfir pari. Enski kylfingurinn David Carter er efstur þeirra sem lokið hafa við aðra umferð en hann er samtals á 10 höggum undir pari. Birgir er sem stendur í 123. sæti á mótinu.

Skorkort Birgis.

Staðan á mótinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert