Immelman með tveggja högga forskot

Trevor Immelman mundar kylfuna en S-Afríkumaðurinn er með forystu á …
Trevor Immelman mundar kylfuna en S-Afríkumaðurinn er með forystu á US-Masters mótinu í golfi. Reuters

Íslandsvinurinn Trever Immelman frá Suður-Afríku er efstur þriðja daginn í röð á 11 höggum undir pari á US-Mastersmótinu í golfi en þriðja keppnisdeginum var að ljúka. Brandt Snedeker frá Bandaríkjunum er annar, 9 höggum undir pari, Steve Flesch, Bandaríkjunm er þriðji, 8 höggun undir pari, Paul Casey, Englandi, er fjórði, 7 höggum undir pari og Tiger Woods, sem hefur sótt mjög í sig veðrið kemur næstur, 5 höggum undir pari.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert