Tímabilið á enda hjá Magnúsi Lárussyni

Magnús Lárusson leikur ekki meira golf á þessu keppnistímabili. stækka

Magnús Lárusson leikur ekki meira golf á þessu keppnistímabili. seth@mbl.is

mbl.is Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is

„Það er ljóst að keppnistímabilið hjá mér hér á Íslandi er búið en ég veit ekki hvort ég verð klár í slaginn fyrir úrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina í haust. Það er eiginlega allt á öðrum endanum en ég mun fá álit frá sérfræðingum á  næstu dögum hvað best er að gera,“ sagði atvinnukylfingurinn Magnús Lárusson úr Kili en hann braut bátsbeinið í úlnlið í knattspyrnuleik með utandeildarliðinu FC Puma.

„Það er alveg hægt að segja að það hafi verið röng ákvörðun hjá mér að spila leikinn. Þetta var fyrsti leikur minn með liðinu á þessu tímabili en ég hef verið að leika mér í fótbolta í gegnum tíðina,“ sagði Magnús. Atvikið átti sér stað á mánudagskvöldið, degi eftir að hann endaði í öðru sæti á þriðja móti ársins á Kaupþingsmótaröðinni á Garðavelli á Akranesi. Þar tapaði Magnús í bráðabana gegn Þórði Rafni Gissurarsyni úr GR.

„Ég verð örugglega í 6-8 vikur í gifsi og kannski þarf ég að fara í aðgerð. Ég geri alveg ráð fyrir því að vera úr leik út þetta ár. Ef allt fer á versta veg gæti það verið niðurstaðan. Ég mun ekki ekki leika fleiri leiki með FC Puma, aldrei. Ég var í sókninni og sólaði varnarmann en við flæktumst eitthvað saman og hann datt síðan á hendina á mér. Ég fann að það var eitthvað mikið að og þegar ég kom á slysamóttökuna áttaði ég mig á því að ég hafði aldrei komið þangað áður. Ég hef varla fengið gat á hausinn í gegnum tíðina og þetta er því alveg nýtt fyrir mér að meiðast. Ég hefði alveg eins getað dottið í Kringlunni og meitt mig. Slysin gera ekki boð á undan sér og það er auðvelt að vera vitur á eftir á,“ sagði Magnús.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Laugardaginn 19. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Mánudaginn 7. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Mánudaginn 16. apríl

Föstudaginn 13. apríl

Fimmtudaginn 12. apríl

Sunnudaginn 8. apríl

Laugardaginn 7. apríl


finnur.is