Sigmundur áfram, Örn ekki

Sigmundur Einar Másson er kominn áfram á annað stig úrtökumótaraðarinnar.
Sigmundur Einar Másson er kominn áfram á annað stig úrtökumótaraðarinnar. mbl.is

Kylfingurinn Sigmundur Einar Másson er kominn áfram á fyrsta stig úrtökumóts fyrir PGA mótaröðina en hann endaði í 30. sæti eftir fjórða og síðasta daginn í forkeppni sem fram fór í Bandaríkjunum. 39 efstu menn komast áfram í raunverulega úrtökukeppnina.

Örn Ævar Hjartarson er hins vegar úr leik á úrtökumótinu fyrir evrópsku mótaröðina en aðeins munaði einu höggi að takmarkið næðist að þessu sinni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert