Snýr Tiger aftur í þessum mánuði?

Tiger Woods hefur legið undir feldi síðan í nóvember. stækka

Tiger Woods hefur legið undir feldi síðan í nóvember. Reuters

Vefur breska ríkisútvarpsins, BBC greindi frá því í dag að efsti kylfingur heimslistans, Tiger Woods hafi sett stefnuna á að snúa aftur á golfvöllinn hinn 17. febrúar næstkomandi.

Þá fer fram Heimsmótið í holukeppni í Arizona og samkvæmt BBC eru líkur á því að Tiger verði þar á meðal keppenda en vitnað er í frétt ástralska blaðsins The Melbourne Herald Sun. Samkvæmt heimildum Ástralanna hefur fyrirtæki Tigers sett sig í samband við mótshaldara í Arizona. Í heimsmótinu fá 64 efstu kylfingar heimslistans sjálfkrafa þáttökurétt og þurfa að staðfesta þáttöku í síðasta lagi 12. febrúar. Í ljósi þess að Tiger hefur ekki látið sjá sig á opinberum vettvangi síðan í nóvember þá gefur auga leið að mótshaldarar þurfa drjúgan tíma til þess að undirbúa sig fyrir þann fjölmiðlasirkus sem myndi fylgja endurkomu Tigers.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Sunnudaginn 29. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Sunnudaginn 15. janúar

Fimmtudaginn 12. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Sunnudaginn 8. janúar

Laugardaginn 7. janúar

Mánudaginn 2. janúar

Laugardaginn 31. desember

Miðvikudaginn 21. desember

Þriðjudaginn 20. desember

Mánudaginn 19. desember

Laugardaginn 17. desember

Sunnudaginn 11. desember

Laugardaginn 10. desember

Föstudaginn 9. desember

Fimmtudaginn 8. desember

Miðvikudaginn 7. desember

Þriðjudaginn 6. desember

Mánudaginn 5. desember

Sunnudaginn 4. desember

Laugardaginn 3. desember

Föstudaginn 2. desember

Þriðjudaginn 29. nóvember

Mánudaginn 28. nóvember

Laugardaginn 26. nóvember

Föstudaginn 25. nóvember

Fimmtudaginn 24. nóvember

Miðvikudaginn 23. nóvember


finnur.is