Kylfingar gagnrýna Tiger

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Suður-afríski kylfingurinn Ernie Els sagði í dag, að það lýsti sjálfselsku Tigers Woods að hann áformar að gefa opinbera yfirlýsingu um einkalíf sitt og feril á morgun á sama tíma og mikilvægt golfmót stendur sem hæst í Arizona í Bandaríkjunum.

„Þetta er sjálfselska," sagði Els við vef Golf Week. „Ég kenni í brjósti um þá sem kosta mótið. Það er ágætt að koma með yfirlýsingar á mánudögum en ekki föstudögum. Það dregur athyglina frá golfmótunum." 

Ráðgjafafyrirtækið Accenture er helsti styrktaraðili mótsins í Arizona en fyrirtækið rifti auglýsingasamningi við Woods eftir að kvennamál hans komu upp á yfirborðið.  

Golf Week hefur eftir öðrum ónafngreindum kylfingi, að engu sé líkara en að Woods sé að ná sér niðri á Accenture.  

Mark Steinberg, umboðsmaður Woods, sagði hins vegar við Golf Week, að blaðamannafundur Woods hefði verið ákveðinn í samráði við Accenture og fyrirtækið hefði stutt hann heilshugar. 

Steinberg sagði í gærkvöldi, að Woods vildi á fundinum ræða um  hvernig hann ætlaði að bæta ráð sitt. Hann lagði hins vegar áherslu á að ekki væri um að ræða blaðamannafund og þótt völdum hópi blaðamanna yrði boðið að vera viðstaddur yrðu spurningar ekki leyfðar.  

Golfumboðsmaður, sem vildi ekki láta nafns síns getið, sagði við golfblaðið í gærkvöldi, að ef Woods vildi ekki svara spurningum gæti hann ekki vonast til þess að ljúka málinu því mörgum spurningum væri enn ósvarað.  

Ernie Els.

Ernie Els. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Sunnudaginn 29. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Sunnudaginn 15. janúar

Fimmtudaginn 12. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Sunnudaginn 8. janúar

Laugardaginn 7. janúar

Mánudaginn 2. janúar

Laugardaginn 31. desember

Miðvikudaginn 21. desember

Þriðjudaginn 20. desember

Mánudaginn 19. desember

Laugardaginn 17. desember

Sunnudaginn 11. desember

Laugardaginn 10. desember

Föstudaginn 9. desember

Fimmtudaginn 8. desember

Miðvikudaginn 7. desember

Þriðjudaginn 6. desember

Mánudaginn 5. desember

Sunnudaginn 4. desember

Laugardaginn 3. desember

Föstudaginn 2. desember

Þriðjudaginn 29. nóvember

Mánudaginn 28. nóvember

Laugardaginn 26. nóvember

Föstudaginn 25. nóvember

Fimmtudaginn 24. nóvember

Miðvikudaginn 23. nóvember


finnur.is