Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 19.2.2010
| 11:36
Titilvörn Ogilvy fékk snöggan endi
Ríkjandi meistari Geoff Ogilvy er úr leik á Heimsmótinu í holukeppni sem fram fer
í Arizona í Bandaríkjunum. Kolumbíumaðurinn Camilo Villegas vann Ogilvy í
2. umferð keppninnar í gær og verða það að teljast óvænt úrslit þó svo hæfileikar
Villegas séu flestum kunnir.
Bandaríkjamaðurinn Steve Stricker var álitinn sterkasti kylfingur keppninnar með
tilliti til heimslistans og fjarveru landa hans Tigers Woods og Phils Mickelsons. Stricker féll úr leik í 1. umferð.
Af þeim sem eftir eru í keppninni er Paul Casey efstur á heimslistanum en hann er í
6. sæti listans. Lee Westwood, Jim Furyk og Rory McIlroy voru á meðal þeirra
sem féllu úr keppni í 2. umferð.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin