Kylfingar frá Evrópu áberandi á heimslistanum

Ian Poulter er í fimmta sæti heimslistans. stækka

Ian Poulter er í fimmta sæti heimslistans. Reuters

Enski kylfingurinn Ian Poulter er í fimmta sæti heimslistans í golfi eftir sigurinn á heimsmótinu í holukeppni um helgina. Kylfingar frá Evrópu hafa sótt í sig veðrið í baráttunni um efstu sæti heimslistans en átta af alls þrettán efstu eru evrópskir. Tiger Woods er langefstur á þessum lista þrátt fyrir að hann hafi ekki keppt á golfmóti á undanförnum mánuðum.

Aðeins 12 kylfingar hafa náð efsta sæti heimslistans frá árinu 1986 en það var Þjóðverjinn Bernhard Langer sem var efstur á listanum þegar hann var birtur í fyrsta sinn. Woods hefur haldið efsta sætinu samfellt í 264 vikur.

Tuttugu efstu á heimslistanum:

1. Tiger Woods 12.60 stig.
2 Steve Stricker 7.93
3. Phil Mickelson 7.68
4. Lee Westwood 7.04
5. Ian Poulter 6.31
6. Paul Casey 6.03
7. Jim Furyk 5.35
8. Martin Kaymer 5.30
9. Rory McIlroy 5.00
10. Padraig Harrington 4.93
11. Henrik Stenson 4.90
12. Geoff Ogilvy 4.87
13. Sergio Garcia 4.40
14. Kenny Perry 4.36
15. Robert Allenby 4.23
16. Retief Goosen 4.05
17. Stewart Cink 4.00
18. Sean O'Hair 3.98
19. Ernie Els 3.95
20. Robert Karlsson 3.93

Þeir sem hafa náð efsta sætinu eru: Bernhard Langer, Seve Ballesteros, Greg Norman, Nick Faldo,Ian Woosnam, Fred Couples, Nick Price, Tom Lehman, Tiger Woods, Ernie Els, David Duval ogVijay Singh.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Laugardaginn 19. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Mánudaginn 7. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Mánudaginn 16. apríl

Föstudaginn 13. apríl

Fimmtudaginn 12. apríl

Sunnudaginn 8. apríl

Laugardaginn 7. apríl


finnur.is