Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 17.3.2010
| 10:29
Ólafur Loftsson sigraði á háskólamóti
Íslandsmeistarinn Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum sigraði á háskólamóti í golfi á Flórída í gærkvöldi. Ólafur lék frábærlega í mótinu og lék 54 holur á samtals sjö höggum undir pari.
Fyrsta hringinn lék Ólafur á 71 höggi, þann næsta á 70 og loka hringinn á 68 höggum.
Mótið heitir Rio Pinar Invitational og sigraði Ólafur með tveggja högga mun en í öðru sæti varð Brad Schneider. Ólafur leikur fyrir Charlotte háskólann sem hafnaði í öðru sæti í liðakeppninni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






