Aðeins þrír Íslendingar hafa sigrað á háskólamóti

Ólafur Björn Loftsson. stækka

Ólafur Björn Loftsson. mbl.is/Sigurður Elvar/golf@mbl.is

Morgunblaðið Eftir Kristján Jónsson, kris@mbl.is

Ólafur Björn Loftsson, Íslandsmeistari úr Nesklúbbnum, sýndi allar sínar bestu hliðar og sigraði á Rio Pinar Invitational-háskólamótinu í golfi á Flórída á þriðjudagskvöldið. Ólafur steig varla feilspor í mótinu og lék hringina þrjá á samtals sjö höggum undir pari. Aðeins þrír Íslendingar hafa sigrað á háskólamóti í golfi.

Spilaðar voru 36 holur á mánudaginn og þá lék Ólafur á 71 og 70 höggum við erfiðar aðstæður. Ólafur tjáði Morgunblaðinu að þá hafi verið mjög hvasst og menn hafi átt fullt í fangi með að halda boltanum í leik á þröngum skógarvellinum. „Þetta var frábært mót og alveg virkilega gaman. Það var svakalega spennandi lokadagurinn og alveg ótrúlega gaman að ná sínum fyrsta sigri í 1. deildinni í háskólagolfinu. Þetta er alveg frábært“ sagði Ólafur þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hans í gær.

Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst hafa aðeins tveir Íslendingar sigrað á háskólamóti í golfi. Sá fyrsti var Úlfar Jónsson, sem sigraði á móti á lokaári sínu í háskóla. Þess ber einnig að geta að Úlfari var sýndur sá mikli heiður að vera valinn All American á háskólaárum sínum. Nokkrir íþróttamenn á landsvísu úr nokkrum greinum háskólaíþrótta eru valdir árlega. Sigmundur Einar Másson hefur einnig sigrað á háskólamóti og er jafnframt sá eini sem hefur sigrað tvívegis á slíkum mótum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Sunnudaginn 29. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Sunnudaginn 15. janúar

Fimmtudaginn 12. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Sunnudaginn 8. janúar

Laugardaginn 7. janúar

Mánudaginn 2. janúar

Laugardaginn 31. desember

Miðvikudaginn 21. desember

Þriðjudaginn 20. desember

Mánudaginn 19. desember

Laugardaginn 17. desember

Sunnudaginn 11. desember

Laugardaginn 10. desember

Föstudaginn 9. desember

Fimmtudaginn 8. desember

Miðvikudaginn 7. desember

Þriðjudaginn 6. desember

Mánudaginn 5. desember

Sunnudaginn 4. desember

Laugardaginn 3. desember

Föstudaginn 2. desember

Þriðjudaginn 29. nóvember

Mánudaginn 28. nóvember

Laugardaginn 26. nóvember

Föstudaginn 25. nóvember

Fimmtudaginn 24. nóvember

Miðvikudaginn 23. nóvember


finnur.is