Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 22.3.2010
| 8:31
Fyrsti sigur Furyk frá árinu 2007
Jim Furyk fagnaði sigri á Transitions meistaramótinu í golfi
í gær og þar með lauk 32 mánað bið hans eftir sigri á PGA-mótaröðinni. Furyk
hafði tekið þátt á 58 mótum í röð án árangurs. Bandaríkjamaðurinn lék samtals á
13 höggum undir pari en hann fagnaði síðast sigri árið 2007 á Opna kanadaíska
meistaramótinu.
K.J. Choi frá Suður-Kóreu varð annar á 12 höggum undir pari. Þetta er í 14. sinn sem Furyk
sigrar á PGA –mótaröðinni og með sigrinum fór hann upp í sjötta sæti
heimslistans. Bubba Watson frá Bandaríkjunum endaði í þriðja sæti.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






