Tiger segist hafa verið í afneitun

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Tiger Woods sagði í viðtali við íþróttasjónvarpsstöðina ESPN í kvöld, að hann hefði verið í afneitun og sært marga með framkomu sinni, þar á meðal eiginkonu sína og fjölskyldu.

„Ég lifði í blekkingu," sagði Woods í fyrsta viðtalinu, sem hann hefur veitt frá því hann varð miðpunktur hneykslismáls í nóvember. „Og ég gerði hluti sem særðu marga. Þegar maður flettir ofan af afneituninni og réttlætingunni sér maður sannleikann um sjálfan sig og hann er stundum ófagur."

Woods tilkynnti í síðustu viku að hann muni taka þátt í Masters golfmótinu á Augusta golfvellinum í Georgíu eftir fjögurra mánaða hlé frá keppni. Búist er við gríðarlegu fjölmiðlafári þegar Woods birtist með kylfurnar á ný.

Woods sagði í viðtalinu, að hann væri að endurskipuleggja líf sitt. „Þegar maður horfist í augu við það og reynir að sigrast á því og haga sér í samræmi við það þá fyllist maður krafti; ég hef aldrei fundið fyrir slíkum krafti áður."

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar


finnur.is