Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 29.8.2010
| 16:38
Haraldur tók það á endasprettinum
Haraldur Franklín Magnús sigraði í karlaflokki á Egils Gull mótinu á Eimskipsmótaröðinni í golfi í dag, fékk fugl á síðustu holu og varð höggi á undan næstu mönnu.
Haraldur lék á þremur höggum undir pari í dag og lauk leik á 138 höggum, tveimur undir pari en þeir Sigmundur Einar Másson og Stefán Már Stefánsson enduðu á 139 höggum hvor og Hlynur Geir Hjartarson kom þar höggi á eftir, en hann lék á tveimur höggum undir pari í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






