Woods er 9 höggum á eftir Day og Johnson
Ástralinn Jason Day og Bandaríkjmaðurinn Zach Johnson léku báðir á átta höggum undir pari, 63 höggum, á fyrsta keppnisdegi Deutsche Bank meistaramótsins í golfi í Bandaríkjunum í gær. Tiger Woods lék ekki vel og er hann 9 höggum á eftir efstu mönnum en Woods lék á 72 höggum eða einu höggi yfir pari.
Woods er í 87.- 94. sæti af alls 99 kylfingum. Aðeins 70 stigahæstu komast áfram í þriðju umferð úrslitakeppninnar. Day fékk alls 10 fugla á hringnum í gær en Johnson missti aldrei högg og fékk 8 fugla og 10 pör.
Mótið er annað í röðinni í fjögurra móta Fed-Ex úrslitakeppni PGA-mótaraðarinnar en stigahæsti kylfingurinn fær um 1,2 milljarða kr. í sinn hlut. Heildarverðlaunafé úrslitakeppninnar er rúmlega 4 milljarðar kr.
Woods er í 65. sæti á stigalistanum í Fed-Ex úrslitakeppninni og hann þarf
að vera í hópi 70 stigahæstu eftir þetta mót til þess að komast áfram. Næsta mót fer fram í næstu viku á Cog Hill
vellinum við Chicago þar sem að 70 kylfingar taka þátt. Lokamótið fer fram á
East Lake vellinum í Atlanta, Players meistaramótið, og þar fá aðeins 30
kylfingar að taka þátt.
„Ég var bara ekki með þetta í dag. Sveiflan var ekki í lagi, ég framkvæmdi höggin
ekki eins og ég ætlaði mér. Púttin voru líka léleg, þetta var slæmur
golfhringur. Ég þarf að ná mjög góðu skori á öðrum hringnum til þess að eiga
möguleika,“ sagði Woods í gær.






