Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 23.11.2011
| 9:20
| Uppfært
24.11.2011
15:40
Íslandsmótið í holukeppni fyrr á ferðinni
Íslandsmótið í holukeppni verður fyrr á ferðinni næsta sumar en verið hefur undanfarin ár. Samþykkt var á golfþingi um síðustu helgi að færa mótið framar í dagatalinu þar sem margir af efnilegustu kylfingum landsins halda til Bandaríkjanna í nám í ágúst á ári hverju.
Íslandsmótið í holukeppni mun á næsta ári fara fram í Leirdalnum hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar 22. - 24. júní. Verður mótið þá þriðja mótið á Eimskipsmótaröð GSÍ.
Íslandsmótið í höggleik verður haldið á Hellu 26. - 29. júlí.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






