Westwood aftur með á PGA mótaröðinni
Bretinn Lee Westwood hefur ákveðið að taka þátt á PGA mótaröðinni í golfi vestanhafs á næstu golfvertíð. Hann mun því bæði taka þátt í Evrópumótaröðinni og þeirri bandarísku. Eitt af því sem hjálpaði til við ákvörðunina var, að sögn Westwoods, Ryder-bikarinn í golfi sem fram fer í september í Illinois þar vestra.
„Mér fannst það bara rétt af því að Ryder-bikarinn er leikinn á næsta ári, að binda mig að fullu við bandarísku mótaröðina,“ sagði Westwood í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér.
Það þýðir að hann mun í fyrsta skipti taka þátt í FedEx bikarnum sem þekktur er fyrir gríðarlega fjármuni þegar kemur að verðlaunafé. Hann mun einnig taka þátt í Players meistaramótinu sem er eitt af risamótunum.
„Ég saknaði Players mótsins á síðasta ári þegar ég horfði á það í sjónvarpinu,“ sagði Westwood og bætti við að vegna anna og skuldbindinga á öðrum vígstöðum hefði hann ekki getað séð sér fært að mæta í ár. Þá hlakkar hann mikið til að taka þátt í FedEx bikarnum í fyrsta sinn.
Til að geta verið skráður á PGA mótaröðina þurfa kylfingar að taka þátt á í það minnsta 15 mótum. Varaforseti mótaraðarinnar talaði vel um Westwood þegar hann bauð þennan þriðja stigahæsta kylfing heims velkominn til leiks.
„Við erum mjög ánægðir með að bjóða Lee velkominn á mótaröðina. Hann hefur að sjálfsögðu sannað sig sem einn af bestu og stöðugustu kylfingum heims. Þá munu aðdáendur mótaraðarinnar fagna því að fá fleiri tækifæri til að fylgjast með honum.“






