Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 24.11.2011
| 17:21
| Uppfært
20:33
Fimleikar og golf á Smáþjóðaleikunum á Íslandi
Ákveðið var á fundi framkvæmdastjórnar Smáþjóðaleikanna í dag að þegar leikarnir fara fram á Íslandi árið 2015 verði viðbótargreinar leikanna áhaldafimleikar og golf.
Samkvæmt reglum Smáþjóðaleikanna er keppt í ákveðnum greinum á hverjum leikum en gestgjafarnir hverju sinni hafa möguleika á að bæta við tveimur greinum, svo framarlega sem lágmarksþátttaka næst, og framkvæmdastjórn leikanna þarf að samþykkja þær.
Framkvæmdastjórnin fundaði í Sochi í Rússlandi í dag, í tengslum við aðalfund Evrópusambands Ólympíunefnda, og þar voru greinarnar samþykktar.
Aðrar greinar á leikunum eru frjálsíþróttir, sund, júdó, skotíþróttir, borðtennis, tennis, körfuknattleikur, blak og strandblak.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






