Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 25.11.2011
| 12:39
| Uppfært
14:49
McIlroy og McDowell blanda sér í baráttuna
Norður-Írarnir Rory McIlroy og Graeme McDowell eru að blanda sér í baráttuna um sigurinn á HM atvinnumanna í golfi þar sem tveir kylfingar frá hverri þjóð leika saman í liðakeppni.
Fáum kemur á óvart að þessir frábæru kylfingar skuli vera á meðal þeirra efstu og deila þeir efsta sætinu með Ástralíu. Fyrir hönd Ástralíu leika Richard Green og Brendan Jones.
McIlroy og McDowell léku á 68 höggum í nótt eða á fjórum undir pari en mótið fer fram í Kína.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






