Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 26.11.2011
| 11:00
Norður-Írarnir efstir í Kína
Norður-Írarnir Rory McIlroy og Graeme McDowell náðu í dag tveggja högga forskoti á heimsbikarmótinu í liðakeppni í golfi sem nú stendur yfir í Haikou í Kína.
Þeir félagarnir léku geysilega vel í dag og náðu samanlagt átta fuglum. Þeir léku á 64 höggum, átta undir pari, og eru á samtals 21 höggi undir pari. Úrslitin ráðast á morgun.
Bandaríkin, Suður-Afríka og Þýskaland eru í 2.-4. sæti á 19 höggum undir pari. Fyrir Bandaríkin spila Matt Kuchar og Gary Woodland, fyrir Suður-Afríku spila Charl Schwartzel og Louis Oosthuizen og fyrir Þýskaland spila Martin Kaymer og Alex Cejka.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






