Íþróttir
|
Golf
| Morgunblaðið
| 28.11.2011
| 7:30
Bandarískur sigur á HM
Matt Kuchar og Gary Woodland tryggðu Bandaríkjunum sigur á heimsmeistaramóti atvinnumanna í golfi í Kína í gær en þar keppa tveir saman í liði. Kuchar var einnig í liði Bandaríkjanna sem sigraði í Forsetabikarnum á dögunum og virðist ráða vel við liðakeppnir.
Norður-Írarnir Rory McIlroy og Graeme Mc Dowell höfðu tveggja högga forskot fyrir lokadaginn og þóttu sigurstranglegir en voru þremur höggum á eftir þegar upp var staðið eftir að hafa leikið lokahringinn á pari.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






