Trump að klára besta golfvöll heims (myndskeið)

Golfvöllur Donalds Trumps í Aberdeen í Skotlandi. stækka

Golfvöllur Donalds Trumps í Aberdeen í Skotlandi. Trump Internationals

Auðkýfingurinn Donald Trump gerir fátt nema að vekja á því mikla athygli, sérstaklega þegar kemur að fjárfestingum. Það á einnig við um golfvöll sem er í byggingu í Aberdeen í Skotlandi. Trump segir völlinn eiga að vera þann besta í heimi og miðað við myndir í myndbandinu hér fyrir neðan er ekki ólíklegt að hann komist nærri því.

Eins og fram kemur á kylfingur.is voru myndirnar teknar í haust en völlinn á að opna í júlí á næsta ári. Þrátt fyrir að enn sé langt í opnun hafa þegar um 1000 kylfingar pantað sér rástíma fyrir 200 pund eða rétt rúmar 37 þúsund krónur.

Völlurinn er strandvöllur og byggður inn í landslagið, sem er hreint magnað. Greinilega hefur mikið verið lagt upp úr því að láta landið móta völlinn enda barðist Trump fyrir því að völlurinn yrði byggður á þessu svæði.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Laugardaginn 19. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Mánudaginn 7. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Mánudaginn 16. apríl

Föstudaginn 13. apríl

Fimmtudaginn 12. apríl

Sunnudaginn 8. apríl

Laugardaginn 7. apríl


finnur.is