Íþróttir
|
Golf
| Morgunblaðið
| 2.12.2011
| 7:40
Birgir byrjar í dag á Spáni
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG mætir á teig klukkan 9:45 að íslenskum tíma í Jerez á Spáni en í dag hefst 2. stig úrtökumótanna fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Leikið verður á fjórum völlum og að loknum 72 holum komast 15 til 20 kylfingar áfram af hverjum velli á þriðja og lokastigið. Birgir leikur á Costa Ballena Ocean-vellinum og með honum í ráshóp verða þeir Andrea Signori og Raphael DeSousa.
Birgi tókst í sumar að vinna sér fullan þátttökurétt á Áskorendamótaröðinni árið 2012 en reynir nú að vinna sér aftur þátttökurétt á Evrópumótaröðinni sem hann missti vegna bakmeiðsla árið 2009. kris@mbl.is
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






