Birgir Leifur í erfiðri stöðu

Birgir Leifur Hafþórsson.

Birgir Leifur Hafþórsson. Reuters

Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG er í erfiðri stöðu að loknum fyrsta keppnisdegi á 2. stigi úrtökumótanna fyrir Evrópumótaröðina. Birgir lék fyrsta hringinn í dag á 77 höggum sem er fimm högg yfir pari vallarins.

Birgir lék holur 10 til 18 á fimm yfir pari og þar fékk hann engan fugl, en einn skolla og tvo tvöfalda skolla. Holur 1 til 9 lék hann því á parinu og fékk þar þrjá fugla á holum 5 til 8.

73 kylfingar leika á Costa Ballena-vellinum í Jerez í suðurhluta Spánar og einungis tveir þeirra áttu verri dag en Birgir og léku á  79 höggum.

Völlurinn virðist ekki vera neitt sérstaklega auðveldur en bestu hringir dagsins voru upp á 68 högg eða fjóra undir pari. Alls léku 26 þeirra undir pari og Birgir á því mikið verk fyrir höndum ef hann ætlar að blanda sér í baráttuna um tuttugu efstu sætin að loknum 72 holum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Laugardaginn 19. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Mánudaginn 7. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Mánudaginn 16. apríl

Föstudaginn 13. apríl

Fimmtudaginn 12. apríl

Sunnudaginn 8. apríl

Laugardaginn 7. apríl


finnur.is