Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 3.12.2011
| 16:01
| Uppfært
18:10
Allt þarf að ganga upp hjá Birgi
Birgir Leifur Hafþórsson er í 59.-66. sæti á fjórum höggum undir pari nú þegar allir kylfingar hafa lokið keppni á öðrum keppnisdegi 2. stigs úrtökumótanna fyrir Evrópumótaröðina í golfi.
Búast má við að 18 efstu kylfingarnir komist áfram og því þarf allt að ganga upp hjá Birgi Leifi á seinni tveimur keppnisdögunum. Kylfingarnir í 15.-18. sæti eru á þremur höggum undir pari og hafa því sjö högga forskot á Birgi Leif. Englendingurinn Sam Hutsby er efstur á samtals níu höggum undir pari.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






