Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 3.12.2011
| 13:57
| Uppfært
14:35
Birgir Leifur bætti sig um sex högg
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson náði aðeins að laga stöðu sína á öðrum keppnisdegi á 2. stigi úrtökumótanna fyrir Evrópumótaröðina í dag. Hann lék í dag á einu höggi undir pari.
Birgir Leifur lék á fimm höggum yfir pari í gær og er því samtals á fjórum höggum yfir pari. Hann þarf að ná sér enn betur á strik á seinni tveimur keppnisdögunum til að eiga möguleika á að komast áfram en margir eiga eftir að koma í hús í dag.
Birgir Leifur lék sautján holur á pari í dag en náði í fugl á 8. holunni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






