Birgir Leifur á enn möguleika

Birgir Leifur lék afar vel í dag. stækka

Birgir Leifur lék afar vel í dag. mbl.is

Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, lék frábærlega á þriðja keppnisdegi á 2. stigi úrtökumóta fyrir Evrópumótaröðina í golfi en leikið er á Costa Ballena-vellinum í Jerez í suðurhluta Spánar.

Birgir Leifur lék á 68 höggum í dag, eða fjórum höggum undir pari, og er þar með samtals á pari eftir dagana þrjá en hann lék á fimm höggum yfir pari fyrsta daginn. Hann fékk engan skolla í dag en fugl á 8., 9., 10. og 12. holu.

Þar með er Birgir Leifur í 42.-46. sæti af 74 kylfingum en ætla má að 18 efstu kylfingarnir komist áfram. Kylfingarnir í 18.-23. sæti eru á fimm höggum undir pari og því þarf Birgir Leifur líklega að ná enn betri hring en í dag á lokakeppnisdeginum en ljóst er að hann á enn möguleika.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Laugardaginn 19. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Mánudaginn 7. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Mánudaginn 16. apríl

Föstudaginn 13. apríl

Fimmtudaginn 12. apríl

Sunnudaginn 8. apríl

Laugardaginn 7. apríl


finnur.is