Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 4.12.2011
| 9:21
| Uppfært
11:38
McIlroy fagnaði sigri í Hong Kong
Norður-Írinn Rory McIlroy fagnaði sigri á opna Hong Kong-mótinu í golfi sem lauk í nótt að íslenskum tíma. Rory lék lokahringinn á 65 höggum og tryggði sér þar með sigurinn og fékk í verðlaun fé sem jafngildir 55 milljónum íslenskra króna.
Rory McIlroy, sem er 22 ára gamall og er annar á heimslistanum á eftir Luke Donald, hefur þar með unnið sér inn tæplega 500 milljónir króna á tímabilinu og getur bætt við þá upphæð en lokamótið á árinu er í Dubai í næstu viku þar sem sigurvegarinn mun fá 930 þúsund evrur, eða sem samsvarar tæpum 150 milljónum króna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






