Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 4.12.2011
| 23:16
| Uppfært
22.12.2011
15:52
Þungu fargi létt af Tiger Woods
Þungi fargi er létt af bandaríska kylfingnum Tiger Woods en hann hrósaði í kvöld sigri á Chevron-mótinu. Þetta er fyrsti sigur Woods frá árinu 2009 eða í 26 mótum en allt hefur gengið á afturfótunum hjá þessum frábæra kylfingi eftir kynlífshneyksli hans.
Woods háði harða rimmu við Zach Johnson og tryggði sér sigurinn með því að ná fugli á 18. holunni. Hann lék samtals á 10 höggum undir parinu en Johnson á níu undir pari.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






