Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 5.12.2011
| 13:33
| Uppfært
14:04
Birgir Leifur úr leik á Spáni
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, er úr leik í úrtökumótunum fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Birgir lék síðasta hringinn á Costa Ballena á Spáni í dag á 71 höggi sem er eitt högg undir pari og lék því holurnar 72 á einu undir pari samtals.
Fáir hafa lokið leik í dag en Birgir er sem stendur í 41. sæti en liðlega 20 kylfingar komast áfram á lokastigið. Birgir verður sjálfsagt fjórum eða fimm höggum frá því þegar upp verður staðið.
Birgir lék þrjá hringi í mótinu undir pari þrátt fyrir allt, en skelfilegur fyrsti hringur setti stórt strik í reikninginn hjá Skagamanninum. Hann lék Birgir á 77 höggum en annan og fjórða hringinn lék hann á 71 höggi og þriðji hringurinn var frábær: 68 högg.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






