Tígurinn er enn svangur

Tiger Woods glaður með sigurlaunin. stækka

Tiger Woods glaður með sigurlaunin. Reuters

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods fagnaði sigri á Chevron- mótinu sem lauk seint á sunnudagskvöldið í Kaliforníu. Ekki var um stórt mót að ræða, og það tilheyrir ekki PGA-mótaröðinni, enda er desember rólegur mánuður í golfinu og þá eru úrtökumótin að klárast fyrir mótaraðirnar árið 2012.

Engu að síður er um merkileg tímamót að ræða því sigurinn var sá fyrsti hjá Tiger í rúm tvö ár. Hann sigraði síðast í Ástralíu haustið 2009, skömmu áður en veröld hans svo gott sem hrundi og í kjölfarið fylgdi líklega meira fjölmiðlafár vegna einkalífs íþróttamanns en við höfum áður orðið vitni að.

Á þessum tveimur árum sem liðin eru í kjölfar kynlífshneykslis og skilnaðar hefur fátt markvert gerst hjá Tiger á golfvellinum. Staða hans gerbreyttist og hann þurfti að kynnast nýjum aðstæðum sem keppandi. Hann hafði vanist því að vera allra manna vinsælastur á golfvellinum og fékk ávallt mikinn stuðning frá áhorfendum. Skyndilega var hann orðinn óvinsæll og andrúmsloftið í kringum hann í mótum orðið allt annað. Hafði þetta einnig mikil áhrif á keppinauta hans.

Sjá ítarlega fréttaskýringu um Tiger Woods í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Laugardaginn 19. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Mánudaginn 7. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Mánudaginn 16. apríl

Föstudaginn 13. apríl

Fimmtudaginn 12. apríl

Sunnudaginn 8. apríl

Laugardaginn 7. apríl


finnur.is