Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 8.12.2011
| 13:30
Hanson með forystu í Dubai
Svíinn Peter Hanson er með forystu eftir fyrsta hringinn á Dubai-heimsmótinu í golfi sem er hluti af Evrópumótaröðinni. Hanson lék fyrsta hringinn á 64 höggum, Skotinn Paul Lawrie frá Skotlandi kemur næstur á 65 og N-Írinn Rory McIlroy lék á 66 höggum.
Spánverjinn Sergio Garcia lék hringinn á 67 höggum en hann á möguleika að vinna sitt þriðja mót í röð á Evrópumótaröðinni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






