McIlroy í veikindafrí?

Rory McIlroy. stækka

Rory McIlroy. Reuters

Rory McIlroy, kylfingurinn ungi og magnaði frá Norður-Írlandi, berst við ofþreytu og slappleika og gæti þurft að taka sér frí frá golfinu eftir að heimsmótinu í Dubai lýkur um helgina.

Fréttastofa Reuters hefur þetta eftir talsmanni Norður-Írans sem segir að búið sé að vara forsvarsmenn taílenska meistaramótsins við því að ekki sé víst að hann mæti til leiks þar í næstu viku eins og fyrirhugað var.

Talsmaðurinn, sem ekki vildi koma fram undir nafni, sagði að McIlroy hefði verið veikur undanfarið, hann væri undir stöðugu eftirliti lækna og yrði skoðaður vel að keppni lokinni á morgun, laugardag. Þá yrði ákvörðun tekin um framhaldið.

McIlroy er fjórði eftir fyrsta daginn í Dubai en hann þarf að vinna mótið og treysta á að Luke Donald verði ekki ofar en í níunda sæti til að verða besti kylfingur Evrópu árið 2011.

„Læknarnir hafa fyrirskipað Rory að æfa ekki neitt og fara ekki í ræktina. Hann er í lagi en verður að halda orkunni. Þetta er vírus og hann þarf sinn tíma til að losna við hann. Þeir vita ekki hvaðan hann kemur en svona vírusar geta haft hægt um sig um skeið og síðan blossað upp að nýju. Hann kemst ekki hjá því að vera úti í sólinni í sex tíma á dag í golfinu en verður síðan að halda sig innandyra. Rory segir að svo framarlega sem hann sofi vel, sé hann hress á morgnana og í byrjun keppni, en innan klukkutíma fari hann að þreytast og þurfi að hvíla sig," sagði talsmaðurinn um ástandið á kylfingnum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Laugardaginn 19. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Mánudaginn 7. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Mánudaginn 16. apríl

Föstudaginn 13. apríl

Fimmtudaginn 12. apríl

Sunnudaginn 8. apríl

Laugardaginn 7. apríl


finnur.is