Íþróttir
|
Golf
| Morgunblaðið
| 10.12.2011
| 9:43
| Uppfært
8.2.2012
14:16
Stefnt að sjálfbærni afrekskylfinga
Úlfar Jónsson, golfkennari frá Hafnarfirði, var á dögunum ráðinn landsliðsþjálfari í golfi. Segja má að hann taki á vissan hátt upp þráðinn þar sem Svíinn Staffan Johansson skildi við haustið 2008.
„Ég lít á þetta sem mjög spennandi verkefni og mikinn heiður fyrir mig að vera boðið að taka þetta að mér. Ég er mjög spenntur fyrir starfinu og hlakka til að vinna með kylfingum og þjálfurum þeirra,“ sagði Úlfar þegar Morgunblaðið ræddi við hann um þetta nýja hlutverk en hann verður í hálfu starfi sem landsliðsþjálfari og í hálfu starfi sem íþróttastjóri GKG. „Ég geri ekki ráð fyrir því að þar verði neinir árekstrar. Þessi tvö störf eiga alveg að geta gengið saman en það kemur betur í ljós þegar líður á næsta ár.“
Nánar er rætt við Úlfar um starfið og afreksstefnu GSÍ í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






