Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 11.12.2011
| 10:24
| Uppfært
11:32
Luke Donald í góðri stöðu
Englendingurinn Luke Donald er í góðri stöðu í kapphlaupinu um efsta sætið á peningalista Evrópumótaraðarinnar í golfi.
Donald átti mjög góðan þriðja hring í gær í Dubai þar sem lokamót mótaraðarinnar þetta árið fer fram og lék á 66 höggum. Hann er í 4. sæti í mótinu á 10 undir pari og takist honum að verða á meðal tíu efstu í mótinu ætti hann að tryggja sér efsta sætið á peningalistanum. Yrði það mikið afrek því Donald er þegar búinn að tryggja sér efsta sæti á peningalista PGA-mótaraðarinnar amerísku.
Sá eini sem getur komið í veg fyrir sögulegan árangur Donalds er Rory McIlroy en hann þarf þá að gera rósir á lokahringnum í Dubai. Í gær lék hann á 71 höggi og er á 8 undir pari.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






