Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 11.12.2011
| 15:26
| Uppfært
17:03
Sögulegt afrek hjá Luke Donald
Englendingurinn Luke Donald varð í dag fyrstur til þess að sigra bæði á Evrópu- og bandarísku PGA-mótaröðinni í golfi en hann tryggði sér efsta sæti peningalista Evrópumótaraðarinnar með því að hafna í 3. sæti á móti í Dubai.
Donald lék á 16 undir pari og tapaði ekki höggi á síðustu 46 holunum í mótinu. Er það í takt við þann mikla stöðugleika sem kylfingurinn sýndi á árinu.
Spánverjinn Alvaro Quiros sigraði á mótinu en hann hafði forystu fyrir lokahringinn og lauk leik á 19 undir pari.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






