Magnað afrek hjá Donald

Luke Donald hefur vegnað frábærlega á árinu. stækka

Luke Donald hefur vegnað frábærlega á árinu. Reuters

Englendingurinn Luke Donald er ekki í efsta sæti heimslistans í golfi að ástæðulausu. Donald vann magnað afrek á árinu þegar hann varð efstur á peningalistum PGA- og Evrópumótaraðanna 2011. Engum öðrum hefur tekist það enda þurfa menn að leika á töluvert mörgum mótum beggja vegna Atlantshafsins til að eiga möguleika.

Donald er 34 ára gamall og heitir fullu nafni Luke Campbell Donald. Hann gerðist atvinnumaður árið 2001 og hóf þann feril á PGA-mótaröðinni en áður hafði hann sigrað á lokamóti NCAA í bandaríska háskólagolfinu. Donald lét strax talsvert fyrir sér fara og tókst að vinna mót á nýliðaári sínu á mótaröðinni.

Nítján sinnum á topp 10

Áratug síðar eru sigrarnir á PGA-mótaröðinni orðnir fjórir og sex á Evrópumótaröðinni auk tveggja á minni mótaröðum. Það má því segja að Donald fagni sigri á hverju ári ef reiknað er meðaltal. Þessi tölfræði telst nú ekki geggjuð í samanburði við marga keppinauta hans en Donald er hins vegar geysilega stöðugur og er ótrúlega oft á meðal efstu manna. Hann dettur því lítið niður inni á milli og skorar þar af leiðandi hátt á peningalistunum, en allir sem komast í gegnum niðurskurð á atvinnumannamótum fá verðlaunafé.

Donald tók þátt í 25 mótum á árinu og hafnaði nítján sinnum á meðal tíu efstu manna sem er með ólíkindum ef horft er til þess hve mikil samkeppni er í íþróttinni í hæsta gæðaflokki.

Ítarlega er fjallað um Donald í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag og einnig rætt við Örn Ævar Hjartarson sem vann Donald einu sinni í keppni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Laugardaginn 19. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Mánudaginn 7. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Mánudaginn 16. apríl

Föstudaginn 13. apríl

Fimmtudaginn 12. apríl

Sunnudaginn 8. apríl

Laugardaginn 7. apríl


finnur.is