Poulter hæstánægður með sláttinn

Ian Poulter brosmildur á 18. holunni í Ástralíu. stækka

Ian Poulter brosmildur á 18. holunni í Ástralíu. Reuters

Hinn litskrúðugi enski kylfingur Ian Poulter sigraði á JBWere-meistaramótinu í golfi sem fram fór í Ástralíu. Poulter lék samtals á 269 höggum eða 15 höggum undir pari eða þremur höggum á undan Marcus Fraser frá Ástralíu. Geoff Ogilvy frá Ástralíu endaði í þriðja sæti á 273 höggum, höggi á eftir Fraser.

Heimamaðurinn Ogilvy var með tveggja högga forystu á Poulter fyrir lokahringinn, en hann lék þriðja hringinn á átta höggum undir pari og sagði eftir þann hring: „Ég kann vel við mig hér í Melbourne og þetta er líklegast sá völlur sem ég hef spilað hvað oftast í gegnum tíðina og hér líður mér alltaf mjög vel.“

En það er greinilega ekki nóg að þekkja völlinn út og inn því Ogilvy lék síðasta hringinn á 73 höggum, eða tveimur höggum yfir pari og varð að sætta sig við þriðja sætið. Poulter lék hins vegar við hvurn sinn fingur á lokahringnum og var ánægður í lok dags: „Ég sló mjög vel og hitti venjulega á þá staði sem ég ætlaði mér þannig að ég er mjög ánægður með hvernig ég spilaði,“ sagði Poulter. Luke Donald lék á 4 höggum undir pari og endaði í 12. sæti. skuli@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Laugardaginn 19. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Mánudaginn 7. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Mánudaginn 16. apríl

Föstudaginn 13. apríl

Fimmtudaginn 12. apríl

Sunnudaginn 8. apríl

Laugardaginn 7. apríl


finnur.is