Westwood er fullur sjálfstrausts

Lee Westwood fagnar sigrinum í Tælandi. stækka

Lee Westwood fagnar sigrinum í Tælandi. Reuters

Enski kylfingurinn Lee Westwood sigraði á Meistaramóti Tælands um helgina, lék á 22 höggum undir pari, sjö höggum betur en Charl Schwartzel frá Suður-Afríku. Þriðji varð síðan Michael Thompson frá Bandaríkjunum á 14 höggum undir pari.

Westwood fór á kostum fyrstu tvo hringina í mótinu þegar hann lauk leik á fyrsta hring á 60 höggum, 12 höggum undir pari og annan hringinn lék hann á 64 höggum, eða átta höggum undir pari og var því samtals á 20 höggum undir pari eftir tvo hringi.

Þriðja hringinn lék sá enski hins vegar á einu höggi yfir pari en Schwartzel lék annan og þriðja hring á 66 höggum og var því aðeins fjórum höggum á eftir Westwood fyrir lokahringinn. En hann náði sér ekki á strik á honum og lék á pari á meðan Westwood lék á þremur höggum undir pari. „Ég er ánægður hvernig ég klára árið. Ég er fullur sjálfstrausts og vonandi verður það líka þannig þegar ég byrja á nýjan leik á nýju ári. Ég var ekkert ánægður með lokahringinn, en hann dugði,“ sagði Westwood eftir sigurinn í Tælandi. skuli@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Laugardaginn 19. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Mánudaginn 7. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Mánudaginn 16. apríl

Föstudaginn 13. apríl

Fimmtudaginn 12. apríl

Sunnudaginn 8. apríl

Laugardaginn 7. apríl


finnur.is